toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Aequidens rivulatus

fAequidens_rivulatus

Green Terror
Aequidens rivulatus

Stærð: 20 cm.

Kynin: Karlfiskarnir eru með oddhvassari bak- og kviðugga og fá einkennandi gulan eða appelsínu- gulan baug í sporðendann.

Um fiskinn: Þessir fiskar hafa á sér orðspor að vera ákaflega grimmir.  Stundum er hægt að hafa þá með öðrum stórum fiskum í stóru búri, en ekki alltaf.  Oftast enda þeir í sér búri, en þeir eru mjög fallegir og með frábæra liti sem vegur upp á móti ókostunum.

Æxlun: Grænperlu siklíðan hrygnir í undirlagið í búrinu. Erfitt er að fá þá til að para sig, en ef þeir gera það ertu heppinn því að betri foreldri eru vandfundin.

Uppruni: Suður-Ameríka: Kyrrahafshlið Esmeraldas fljóts í Ekvador til Tumbes fljóts í Perú.

Búrstærð: 250 l

Hitastig:  20-24°C

Sýrustig (pH): 6,5-8

Harka (gH): 25

Fóður: Þurrfóður, dafnía, blóðormar, skeldýr.

Verð: 5 cm: 1.290 kr; 12 cm: 5.390 kr

Green terror

Copyright www.jjphoto.dk

botn