|
Hi-head Cichlid Amphilophus altifrons
Stærð: 22 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er litsterkari en hrygnan og varir rauðleitar. Vottar fyrir svörtu bandi eftir búknum. Blágrænt perlumynstur, einkum á kvið. Uggarnir eru oddmjórri á hængnum.
Um fiskinn: Þessi fiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Stórt búr með mörgum steinum og felustöðum er best til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili fisksins. Fallegur og harðgerður fiskur, en grimmlyndur eins og aðrar Ameríkusiklíður í sama stærðarflokki.
Æxlun: Það er auðvelt að fá þá til að fjölga sér. Parið velur sér stein eða holu og hrygnir þar. Þetta eru góðir foreldrar og verja ungviðið. Seiðin fara að synda um eftir rúma viku.
Uppruni: Mið-Ameríka: Kyrrahafsmegin á Kostaríka (Térraba fljót) til Panama (Chiriqui fljót).
Búrstærð: 400 l
Hitastig: 22-29°C
Sýrustig (pH): 7 9 Harka (gH): 10
Fóður: Þurrfóður, dafnía, artemía.
Verð: 4 cm: 2.290 kr.
|
|