|
Agassizi’s Dwarf Cichlid Apistogramma agassizii
Stærð: 4,2 cm.
Kynin: Sporðblaka karlfisksins er stærri og lengri en kvenfisksins (neðsta mynd) sem er ávalari.
Um fiskinn: Þetta eru fallegir fiskar en þurfa góða ummönnun og reyndan eiganda. Það þarf lítið út af að bera til að þeir deyi. Þeir elska sprungur og holur og þeim líður vel innan um gróður. Þeir eru frekar friðsamir en þurfa mjög gott fæði. Þeir eru fáanlegir í nokkrum litaafbrigðum td. Red, Double Red og Alenquer.
Æxlun: Dvergsiklíður vilja helst hrygna í hellum eða öðrum lokuðum svæðum. Karlfiskurinn stendur vörð á meðan kvenfiskurinn hugsar um hreiðurstæðið Best að hafa 3-4 hrygnur á hvern hæng. Eggin klekjast á u.þ.b. 3-4 dögum og móðirin hugsar um seiðin uns þau geta synt um sjálf.
Uppruni: Suður-Ameríka: vatnasvæði Amazonfljóts, meðfram Amazon-Solimões fljóti frá Perú til Brasilíu og vatnsvæði Capim fljóts.
Búrstærð: 54 l
Hitastig: 26-29°C
Sýrustig (pH): 5-7
Harka (gH): 0-12
Fóður: Þurrfóður, dafnía.
Verð: 1.690 kr.
|
|