toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Apistogramma atahualpa

Sunset Dwarf Cichlid
Apistogramma atahualpa

Stærð: 4,2 cm.

Kynin: Sporðblaka karlfisksins er stærri og lengri en kvenfisksins (neðri mynd) sem er ávalari.

Um fiskinn: Þetta eru nýlegir og fallegir fiskar frá Perú sem þurfa góða ummönnun og reyndan eiganda.  Það þarf lítið út af að bera til að þeir deyi. Þeir elska sprungur og holur og þeim líður vel innan um gróður. Þeir eru grimmir og þurfa bæði stórt svæði og mjög gott fæði.

Æxlun: Dvergsiklíður vilja helst hrygna í hellum eða öðrum lokuðum svæðum. Karlfiskurinn stendur vörð á meðan kvenfiskurinn hugsar um hreiðurstæðið. Eggin klekjast á u.þ.b. 3-4 dögum og móðirin hugsar um seiðin uns þau geta synt um sjálf.


Uppruni: Suður-Ameríka: vatnasvæði Amazonfljóts á vatnasvæði Nanay fljóts.

Búrstærð: 54 l

Hitastig:  26-29°C

Sýrustig (pH): 5-7

Harka (gH): 0-12

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

Apistogramma_atahualpa
Apistogramma_atahualpa2
botn