toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Apistogramma bitaeniata

Apistogramma_bitaeniata

Banded Dwarf Cichlid
Apistogramma bitaeniata

Stærð: 4,6 cm.

Kynin: Sporðblaka karlfisksins er stærri og lengri en kvenfisksins (mið mynd) sem er ávalari.

Um fiskinn: Þetta eru fallegir fiskar en þurfa góða ummönnun og reyndan eiganda. Það þarf lítið út af að bera til að þeir deyi. Þeir elska sprungur og holur og þeim líður vel innan um gróður. Þeir eru frekar friðsamir en þurfa mjög gott fæði.

Æxlun: Dvergsiklíður vilja helst hrygna í hellum eða öðrum lokuðum svæðum. Karlfiskurinn stendur vörð á meðan kvenfiskurinn hugsar um hreiðurstæðið. Eggin klekjast á u.þ.b. 3-4 dögum og móðirin hugsar um seiðin uns þau geta synt um sjálf.


Uppruni: Suður-Ameríka: vatnasvæði Amazon fljóts, eingöngu Perúmegin og í nærliggjandi svartavatnsám (veiddur í neðri hluta Nanay, Mazán og Tigre í Perú, nálægt Leticia í Kólombíu og í Igarapé Preto og Lago Tefé í Brasilíu).

Búrstærð: 60 l

Hitastig:  23-25°C

Sýrustig (pH): 5-6

Harka (gH): 2-6

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

Apistogramma_bitaeniata2
Apistogramma_bitaeniata5
botn