|
 |
|
Parallel Stripe Dwarf Cichlid Apistogramma cruzi
Stærð: 5,1 cm.
Kynin: Sporðblaka karlfisksins er stærri og lengri en kvenfisksins sem er ávalari (neðri mynd).
Um fiskinn: Þetta eru fallegir fiskar frá Perú en þurfa góða umönnun og reyndan eiganda. Það þarf lítið út af að bera til að þeir deyi. Þeir elska sprungur og holur og þeim líður vel innan um gróður. Þeir eru friðsamir en þurfa mjög gott fæði.
Æxlun: Hrygna í hellum eða öðrum lokuðum svæðum. Karlfiskurinn stendur vörð á meðan kerlan hugsar um hreiðurstæðið. Eggin klekjast á u.þ.b. 3-4 dögum og móðirin hugsar um seiðin uns þau geta synt um sjálf.
Uppruni: Suður-Ameríka: vatnasvæði Amazonfljóts, afrennsli Napo fljóts í Perú og Ekvador, og afrennsli Putumayo og Caquetá fljóts í Kólombíu.
Búrstærð: 60 l
Hitastig: 26°C
Sýrustig (pH): 6
Harka (gH): 6
Fóður: Þurrfóður, dafnía.
|
|