toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Apistogramma eunotus

Eunotus Dwarf Cichlid
Apistogramma eunotus

Stærð: 5,3 cm.

Kynin: Sporðblaka karlfisksins er stærri og lengri en kvenfisksins sem er ávalari (neðri mynd).

Um fiskinn: Þetta eru fallegir fiskar frá Perú sem þurfa góða ummönnun og reyndan eiganda. Það þarf lítið út af að bera til að þeir deyi. Þeir elska sprungur og holur og þeim líður vel innan um gróður.  Þeir eru  friðsamir en þurfa mjög gott fæði. Kemur í nokkrum litaafbrigðum td. Orangetail.

Æxlun: Hrygna í hellum eða öðrum lokuðum svæðum.  Karlfiskurinn stendur vörð á meðan kerlan hugsar um hreiðurstæðið. Eggin klekjast á u.þ.b. 3-4 dögum og móðirin hugsar um seiðin uns þau geta synt um sjálf.

Uppruni: Suður-Ameríka: vatnasvæði Amazonfljóts, í afrennslisám Ucayali og Amazonfljóts og í Yavarífljóti í Perú og Japurá-fljóti í Brasilíu.

Búrstærð: 60 l

Hitastig:  23-30°C

Sýrustig (pH): 7-7,5

Harka (gH): 10

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

Apisto-eunotus
Apistogramma_cf.eunotus_female
botn