toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Apistogramma juruensis

Apistogramma__juruensis3

Jurua Dwarf Cichlid
Apistogramma juruensis

Stærð: 2,4 cm.

Kynin: Sporðblaka karlfisksins er stærri og lengri en kvenfisksins sem er ávalari (neðri mynd).

Um fiskinn: Þetta eru fallegir fiskar frá Brasilíu sem þurfa góða ummönnun og reyndan eiganda. Það þarf lítið út af að bera til að þeir deyi.  Þeir elska sprungur og holur og þeim líður vel innan um gróður. Þeir eru friðsamir en þurfa mjög gott fæði.

Æxlun: Hrygna í hellum eða öðrum lokuðum svæðum.  Karlfiskurinn stendur vörð á meðan kerlan hugsar um hreiðurstæðið. Hængurinn vill hafa nokkrar hrygnur í kvennabúri sínu. Eggin klekjast á u.þ.b. 3-4 dögum og móðirin hugsar um seiðin (neðsta mynd) uns þau geta synt um sjálf.

Uppruni: Suður-Ameríka: vatnasvæði Amazon fljóts í efri hluta afrennslissvæði Juruá-fljóts.

Búrstærð: 60 l

Hitastig:  22-29°C

Sýrustig (pH): 5,5-6

Harka (gH): 5

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

Apistogramma__juruensis2
botn