toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Apistogramma linkei

Linkei Dwarf Cichlid
Apistogramma linkei

Stærð: 3,9 cm, hrygnur 4 cm.

Kynin: Sporðblaka karlfisksins er stærri og lengri en kvenfisksins sem er ávalari (neðri mynd).

Um fiskinn: Þetta eru fallegir fiskar frá Bólivíu sem þurfa góða ummönnun og reyndan eiganda. Það þarf lítið út af að bera til að þeir deyi.  Þeir elska sprungur og holur og þeim líður vel innan um gróður. Þeir eru friðsamir en þurfa mjög gott fæði.

Æxlun: Hrygna í hellum eða öðrum lokuðum svæðum.  Karlfiskurinn stendur vörð á meðan kerlan hugsar um hreiðurstæðið. Eggin klekjast á u.þ.b. 3-4 dögum og móðirin hugsar um seiðin (neðsta mynd) uns þau geta synt um sjálf.

Uppruni: Suður-Ameríka: vatnasvæði Amazon fljóts á afrennslissvæði Mamoré og Beni-fljóts.

Búrstærð: 60 l

Hitastig:  24-26°C

Sýrustig (pH): 5,5-6

Harka (gH): 5

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

Apistogramma_linkei
Apistogramma_linkei2
botn