toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Apistogramma macmasteri

Red-tailed Dwarf Cichlid
Apistogramma macmasteri

Stærð: 5,5 cm, hrygnur 5 cm.

Kynin: Sporðblaka karlfisksins er stærri og lengri en kvenfisksins sem er ávalari (neðri mynd).

Um fiskinn: Þetta eru fallegir fiskar frá Kólúmbíu sem þurfa góða ummönnun og reyndan eiganda. Það þarf lítið út af að bera til að þeir deyi. Þeir elska sprungur og holur og þeim líður vel innan um gróður. Þeir eru friðsamir en þurfa mjög gott fæði. Mörg litaafbrigði eru til td. Red Spot, Redtail, Bluehead.

Æxlun: Hrygna í hellum eða öðrum lokuðum svæðum.  Karlfiskurinn stendur vörð á meðan kerlan hugsar um hreiðurstæðið. Hængurinn vill hafa nokkrar hrygnur í kvennabúri sínu. Eggin klekjast á u.þ.b. 3-4 dögum og móðirin hugsar um seiðin uns þau geta synt um sjálf.

Uppruni: Suður-Ameríka: vatnasvæði Orinoco fljóts, á afrennslissvæði Meta-fljóts (Guaytiquía og Metica-á).

Búrstærð: 60 l

Hitastig:  23-30°C

Sýrustig (pH): 6-6,5

Harka (gH): 2-4

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

Verð: 1.590 kr.

Apistogramma_macmasteri
Apistogramma_macmasteri2
botn