toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Apistogramma mendezi

Mendezi Dwarf Cichlid
Apistogramma mendezi

Stærð: 3,5 cm, hrygnur 4,5 cm.

Kynin: Sporðblaka karlfisksins er stærri og lengri en kvenfisksins sem er ávalari (neðsta mynd).

Um fiskinn: Þetta eru fallegir fiskar frá Brasilíu sem þurfa góða ummönnun og reyndan eiganda. Það þarf lítið út af að bera til að þeir deyi. Þeir elska sprungur og holur og þeim líður vel innan um gróður. Þeir eru friðsamir en þurfa mjög gott fæði. Mörg litaafbrigði eru til td. Rio Urubaxi, Ilhah Grande, Rio Jurubaxi.

Æxlun: Hrygna í hellum eða öðrum lokuðum svæðum.  Karlfiskurinn stendur vörð á meðan kerlan hugsar um hreiðurstæðið. Eggin klekjast á u.þ.b. 3-4 dögum og móðirin hugsar um seiðin (neðsta mynd) uns þau geta synt um sjálf.

Uppruni: Suður-Ameríka: vatnasvæði Amazon fljóts á afrennslissvæði Negro-fljóts.

Búrstærð: 60 l

Hitastig:  22-29°C

Sýrustig (pH): 5-6

Harka (gH): 6-10

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

Apistogramma_mendezi3
Apistogramma_mendezi5
a_Apistogramma_mendezi4
botn