toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Apistogramma moae

Apistogramma_moae2

Moae Dwarf Cichlid
Apistogramma moae

Stærð: 5 cm.

Kynin: Sporðblaka karlfisksins er stærri og lengri en kvenfisksins sem er ávalari (neðri mynd).

Um fiskinn: Þetta eru fallegir fiskar frá Brasilíu sem þurfa góða ummönnun og reyndan eiganda. Það þarf lítið út af að bera til að þeir deyi. Þeir elska sprungur og holur og þeim líður vel innan um gróður. Þeir eru friðsamir en þurfa mjög gott fæði.

Æxlun: Hrygna í hellum eða öðrum lokuðum svæðum.  Karlfiskurinn stendur vörð á meðan kerlan hugsar um hreiðurstæðið. Eggin klekjast á u.þ.b. 3-4 dögum og móðirin hugsar um seiðin (neðri mynd) uns þau geta synt um sjálf.

Uppruni: Suður-Ameríka: vatnasvæði Amazon fljóts á efri hluta afrennslissvæðis Juruá-fljóts.

Búrstærð: 60 l

Hitastig:  21-29°C

Sýrustig (pH): 5-6

Harka (gH): 6-10

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

Apistogramma_moae3
botn