|
|
Amazon Dwarf Cichlid (Net Dwarf Cichlid) Apistogramma pertensis
Stærð: 3,9 cm, hrygnan 4,5 cm.
Kynin: Sporðblaka karlfisksins er stærri og lengri en kvenfisksins sem er ávalari (neðri mynd).
Um fiskinn: Þetta eru fallegir fiskar frá Brasilíu sem þurfa góða ummönnun og reyndan eiganda. Það þarf lítið út af að bera til að þeir deyi. Þeir elska sprungur og holur og þeim líður vel innan um gróður. Þetta eru friðsamir fiskar en þurfa mjög gott fæði.
Æxlun: Hrygna í hellum eða öðrum lokuðum svæðum. Karlfiskurinn stendur vörð á meðan kerlan hugsar um hreiðurstæðið. Eggin klekjast á u.þ.b. 3-4 dögum og móðirin hugsar um seiðin uns þau geta synt um sjálf.
Uppruni: Suður-Ameríka: vatnasvæði Amazon-fljóts í neðra Negro fljóti og frá Manacapuru til Monte Alegre meðfram Amazon-Solimões fljótinu.
Búrstærð: 60 l
Hitastig: 23-30°C
Sýrustig (pH): 5,5
Harka (gH): 5
Fóður: Þurrfóður, dafnía.
|
|