toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Apistogramma steindachneri

Steindachneri Dwarf Cichlid
Apistogramma steindachneri

Stærð: 6,5 cm, hrygnan 7 cm.

Kynin: Sporðblaka karlfisksins er stærri og lengri en kvenfisksins sem er ávalari (neðsta mynd).

Um fiskinn: Þetta eru fallegir fiskar sem þurfa góða ummönnun og reyndan eiganda. Það þarf lítið út af að bera til að þeir deyi. Þeir elska sprungur og holur og þeim líður vel innan um gróður. Þeir eru friðsamir en þurfa mjög gott fæði.

Æxlun: Hrygna í hellum eða öðrum lokuðum svæðum.  Karlfiskurinn stendur vörð á meðan kerlan hugsar um hreiðurstæðið. Eggin (allt upp í 200) klekjast á u.þ.b. 3-4 dögum og móðirin hugsar um seiðin uns þau geta synt um sjálf.

Uppruni: Suður-Ameríka: afrennslissvæði Essequibo, Demerara og Mahaica fljóts, og frá Marowijne fljóti til vatnasvæðis Corantijn fljóts.

Búrstærð: 60 l

Hitastig:  20-25°C

Sýrustig (pH): 6,2-6,8

Harka (gH): 3-10

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

Apisto-steind1
Apisto-steind
Apisto-steind2
botn