toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Apistogramma uaupesi

Apistogramma_uaupesi2

Rotkeil Dwarf Cichlid
Apistogramma uaupesi

Stærð: 2,8 cm, hrygnan 6 cm.

Kynin: Sporðblaka karlfisksins er stærri og lengri en kvenfisksins sem er ávalari.

Um fiskinn: Þetta eru fallegir fiskar frá Brasilíu sem þurfa góða ummönnun og reyndan eiganda. Það þarf lítið út af að bera til að þeir deyi.  Þeir elska sprungur og holur og þeim líður vel innan um gróður. Þeir eru friðsamir en þurfa mjög gott fæði.

Æxlun: Hrygna í hellum eða öðrum lokuðum svæðum.  Karlfiskurinn stendur vörð á meðan kerlan hugsar um hreiðurstæðið. Eggin (allt upp í 200) klekjast á u.þ.b. 3-4 dögum og móðirin hugsar um seiðin uns þau geta synt um sjálf.

Uppruni: Suður-Ameríka: vatnasvæði Amazon fljóts í Uaupés-fljótinu og á afrennslissvæði Negro-fljóts.

Búrstærð: 60 l

Hitastig:  23-29°C

Sýrustig (pH): 4-5

Harka (gH): 2-5

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

Apistogramma_uaupesi
botn