|
 |
|
Viejita Dwarf Cichlid Apistogramma viejita
Stærð: 3 cm, hrygnan 4,6 cm.
Kynin: Sporðblaka karlfisksins er stærri og lengri en kvenfisksins sem er ávalari (neðsta mynd til hægri).
Um fiskinn: Þetta eru fallegir fiskar frá Kólombíu sem þurfa góða ummönnun og reyndan eiganda. Það þarf lítið út af að bera til að þeir deyi. Þeir elska sprungur og holur og þeim líður vel innan um gróður. Þeir eru frekar friðsamir en þurfa mjög gott fæði. Nokkur litabrigði eru til td. Red-rimmed (CF I), Red-Flecked (CF II), Black-Chinned (CF III).
Æxlun: Hrygna í hellum eða öðrum lokuðum svæðum. Karlinn stendur vörð á meðan kerlan hugsar um hreiðurstæðið. Eggin klekjast á u.þ.b. 3-4 dögum og móðirin hugsar um seiðin uns þau geta synt um sjálf.
Uppruni: Suður-Ameríka: vatnasvæði Orinoco-fljóts á afrennslissvæði efra Meta-fljóts.
Búrstærð: 60 l
Hitastig: 23-30°C
Sýrustig (pH): 5,5
Harka (gH): 5
Fóður: Þurrfóður, dafnía.
|
|