|
Convict Cichlid Archocentrus nigrofasciatus
Stærð: 10 cm.
Kynin: Kvenfiskurinn er litskrúðugri (neðri myndir) en karlfiskurinn. Fangasiklíðan er líka til alveg hvít (neðst til hægri) og hrygnan þá laxableik á kviðnum.
Um fiskinn: Þessir fiskar eru fallegir en varhugaverðir. Þeir eiga til að vera yfirgangssamir gagnvart öðrum fiskum. Best er að hafa þá í búri með fiskum af sömu stærð. Geta verið í heitavatnsuppsprettum og fjölgað sér þar.
Æxlun: Það er mjög auðvelt að fá þá til að fjölga sér. Parið velur sér stein eða holu og hrygnir þar. Þetta eru góðir foreldrar og verja ungviðið. Seiðin fara að synda um eftir rúma viku.
Uppruni: Mið-Ameríka: Kyrrahafshlið Gúatemala og Kostaríka (Tárcolesfljót); Atlantshafshlið Hondúras (Aguan-fljót) til Panama (Guarumo-fljót).
Búrstærð: 120 l
Hitastig: 20-36°C
Sýrustig (pH): 7-8
Harka (gH): 9-20
Fóður: Þurrfóður, rækjur, blóðormar, plöntuleifar.
Verð: Normal 990 kr. Albino 990 kr.
|
|