|
T-Bar Cichlid (Sajica Cichlid) Archocentrus sajica
Stærð: 9 cm (hryggnan 8 cm).
Kynin: Hængurinn er litmeiri en hrygnan, ögn stærri og ugganir oddmjórri.
Um fiskinn: Þessir fiskar eru fallegir en eiga til að vera yfirgangssamir gagnvart öðrum fiskum. Flokkast eiginlega til dvergsikíða. Þeir henta í blönduð búr en best er að hafa þá í búri með fiskum af svipaðri stærð. Þekkjast af einkennandi T-mynstri á búknum. Fínn byrjendafiskur fyrir minni búr.
Æxlun: Það er mjög auðvelt að fá þá til að fjölga sér. Parið velur sér stein eða holu og hrygnir þar, allt að 200 hrognum. Þetta eru góðir foreldrar og verja ungviðið. Seiðin fara að synda um eftir rúma viku og nærast í fyrstu á hreisturslími foreldranna.
Uppruni: Mið-Ameríka: Kyrrahafshlið Kosta Ríka.
Búrstærð: 120 l
Hitastig: 23-30°C
Sýrustig (pH): 6,8-7,2
Harka (gH): 15
Fóður: Þurrfóður, rækjur, blóðormar, plöntuleifar.
Verð: 1.290 kr.
|
|