|
 |
|
Chitendi Type East Coast Peacock Aulonocara ”Chitendi Type East Coast”
Stærð: 9-10 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er lillablár á búk og gulsprengdur í uggum og á höfði en hrygnan er gráleit (mið mynd).
Um fiskinn: Þessi fiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst við Makanjilla á austurstönd Malavívatns (neðsta mynd).
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.
Búrstærð: 170 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8
Harka (gH): 22
Fóður: Þurrfóður, dafnía.
|
|