|
|
Mamelela Peacock Aulonocara ”Mamelela”
Stærð: 10-11 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er fagurgulur með skærbláar hliðar. Hrygnan er grábrúnleit.
Um fiskinn: Þessi fiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst við Undu Point á austurströnd Malavívatns. Fallegur fiskur sem virðist skyldur A. jakobfreibergi.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.
Búrstærð: 200 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8
Harka (gH): 22
Fóður: Þurrfóður, dafnía.
|
|