|
 |
|
Benga Peacock Aulonocara baenschi benga
Stærð: 12 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er heiðgulur og blár um kjálkana en hrygnan gulbrúnleit (neðsta mynd). Nefndur í höfuðið á Ulrich Baensch, brautryðjanda í fiskfóður- framleiðslu (Tetra).
Um fiskinn: Þessi fallegi fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst við Benga á vesturströnd Malavívatns.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.
Búrstærð: 200 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8
Harka (gH): 22
Fóður: Þurrfóður, dafnía.
|
|