toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Aulonocara guentheri

Guenther

Guenther Peacock
Aulonocara
guentheri

Stærð: 13-15 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er grænleitur með nokkuð langt trýni. Hrygnan er silfurbrúnleit (neðri mynd). Nefndur í höfuðið á vísindamanninum fræga, Albert Gunther.

Um fiskinn: Þessi stóri fiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst víða í suðurhluta Malavívatns.

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.

Búrstærð: 360 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8

Harka (gH): 22

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

Guenther1
botn