|
 |
|
Midnight Peacock (White Top Peacock) Aulonocara hueseri
Stærð: 9-10 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er gulleitur með blátt höfuð og hvíta brún á bakugganum, en hrygnan brúnleit (sjá neðst til vinstri). Kallaður í höfuðið á Eberhard Hueser.
Um fiskinn: Þessi fiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst við austurströnd Likoma-eyju í Malavívatni (sjá neðst til hægri).
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.
Búrstærð: 170 l
Hitastig: 27°C
Sýrustig (pH): 8,2
Harka (gH): 22
Fóður: Þurrfóður, dafnía.
|
|