|
Blue Orchid Peacock (Kandeensis Peacock) Aulonocara maylandi kandeensis
Stærð: 9-11 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er svarblár með hvíta blesu eftir öllu bakinu en hrygnan silfurbrúnleit. Nefndur eftir rithöfundnum Hans- Joachim Mayland.
Um fiskinn: Þessi myndarlegi fiskur eignar sér yfir- ráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst við Kande-eyju um miðja vesturströnd Malavívatns. Skyldur A. maylandi maylandi.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.
Búrstærð: 200 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8
Harka (gH): 22
Fóður: Þurrfóður, dafnía.
|
|