|
Maylandi Sulphurhead Peacock Aulonocara maylandi maylandi
Stærð: 9-11 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er gráblár með gula blesu og einstaka með appelsínugula blesu eftir öllu bakinu. Hrygnan er silfurgrá en ungviði brúnleitt (mið mynd). Nefndur eftir rithöfundnum Hans-Joachim Mayland.
Um fiskinn: Þessi fallegi fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst við Eccles Reef suður af Makanjilla Point á austurströnd Malavívatns. Skyldur A. maylandi kandeensis.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.
Búrstærð: 200 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8,1
Harka (gH): 22
Fóður: Þurrfóður, dafnía.
|
|