|
|
Undu Point Peacock Aulonocara steveni ”Undu Point”
Stærð: 9-11 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er gublár með blátt höfuð en hrygnan brúnleit (neðri mynd). Nefndur eftir fiskfangaranum, Steven Longbe.
Um fiskinn: Þessi fallegi fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst við Njambe, nálægt Usisya í norðvestur- hluta Malavívatns. Skyldur A. steveni “Hai Reef”, A. steveni “Kande”, A. steveni “Mbamba Bay”, A. steveni “Njambe.”
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.
Búrstærð: 200 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8
Harka (gH): 22
Fóður: Þurrfóður, dafnía.
|
|