|
|
Mbenji Peacock Aulonocara stuartgranti ”Mbenji”
Stærð: 10-11 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er fagurblár með appelsínugular yrjur á búk og uggum en hrygnan brúnleit (mið mynd).
Um fiskinn: Þessi fiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst við Mbenji-eyju út af vesturströnd Malavívatns (mynd neðst til hægri). Er skyldur A. stuartgranti.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.
Búrstærð: 170 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8,1
Harka (gH): 22
Fóður: Þurrfóður, dafnía.
|
|