|
Ngara Flametail Peacock Aulonocara stuartgranti “Ngara”
Stærð: 9-11 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er fagurblár og rauður aftur og neðan á búk en hrygnan brúnleit (neðsta mynd).
Um fiskinn: Þessi fiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst við Ngara á norðvesturströnd Malavívatns. Skyldur A. stuartgranti “Chilumba”, A. stuartgranti “Chitendi Island”, A. stuartgranti “Chitimba Bay.”
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.
Búrstærð: 200 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8
Harka (gH): 22
Fóður: Þurrfóður, dafnía.
|
|