|
Black-billed Amazon Amazona agilis
Kynin: Svartgogginn er grænn; bringa og kviður meira gulgrænn; hnakkafjaðrir með svartar brúnir; margir fuglar með rauðar fjaðrir dreifðar um enni; eyrfjaðrir svartleitar; fremri vængþökur rauðar; aðalflugfjaðrir fjólubláar; aðrar flugfjaðrir dökkbláar en grænar í rótinni; undirstélblöðkur og undirhlið flugfjaðra blágrænar; efri hluti stéls grænn; ytri stélfjaðrir rauðar með blátt í endum; augnhringur grár; goggur grár en ljós næst höfði; augu dökkbrún; fætur gráir.
Lengd: 25 cm.
Lífslíkur: 50-70 ára.
Um kynin: Kvenfuglar eins og karlfuglar en með e-ð af grænum fjöðrum í vængþökum. Ókynþroska fuglar með grænar vængþökur og dökk augu.
Uppruni: Jamíka.
Um fuglinn: Athafnasamur fugl en ekki eins harðger og margir amasónar. Viðkvæmir fyrst í stað en hænast fljótt að eiganda sínum. Hann nagar mikið og ætti því að útvega honum trjágreinar til að naga. Hann er ekki árásargjarn í garð annarra fugla utan varptímans.
Hávaðasemi: Miðlungi hávær-hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Sjaldgæfur og í útrýmingar- hættu, einkum vegna eyðingu skóga.
|
|