|
|
|
Black Molly Poecilia sphenops
Stærð: Hængar 6 cm, hrygnur 10 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er smærri en hrygnan. Eru til í mörgum litarbrigðum - sendnir, svartir, gulappelsínu-gulir, silfurlitir, dröfnóttir, lýrusporðar, blöðrumollar.
Um fiskinn: Svart mollinn er yfirleitt friðsamur fiskur í samfélagsbúrum. Af og til fæðast ágengir karlfiskar og gott að hafa marga kvenfiska innan um þá. Þeim líður best í gróðurbúrum. Þetta eru yfirleitt harðgerir fiskar en þola mengað eða óhreint vatn. Þeir koma úr hálfsöltu vatni og geta aðlagast sjó.
Æxlun: Í hefðbundnum gotfiskastíl. Hængar frjóvga hrygnur utan frá og þær ganga með í 6-10 vikur og gjóta síðan lifandi afkvæmum. Best er að skilja að seiðin frá aðalbúrinu, annars eiga þau á hættu að vera étin. Uppeldisbúr fest við aðalbúrið er góður staður til að ala upp ungviðið. Fiskarnir eignast 20 til 60 seiði í goti.
Uppruni: Mið- og Suður-Ameríka: Mexíkó til Kólombíu Ræktunarafbrigði finnast ekki í náttúrunni.
Búrstærð: 60 l
Hitastig: 18-28°C
Sýrustig (pH): 7,5-8,2
Harka (dH): 11-30
Fóður: Þurrfóður. Þurfa mikið grænfóður.
Verð: Black Molly 480 kr. Red Leopard Molly 580 kr. Balloon Molly 890 kr. Lyretail Molly 590 kr.
|
|