toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Black Phantom Tetra

Black Phantom Tetra
Hyphessobrycon megalopterus

Stærð: 3,6 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er spengilegri og grásvartur í kviðuggum en hrygnan feitlagnari og rauðleitari í kviðuggum (mið mynd).

Um fiskinn: Myndarleg smátetra sem er falleg prýði í heimabúri. Hængar afmarka sér svæði og berast á til að verja það. Þeir fetta sig og synda í hringi hvor um annan uns annar hængurinn lætur í minni pokann. Lyndir alment vel við aðra rólega fiska og plummar sig best í torfu með 5 eða fleiri fiskum. Oft er heppilegast að hafa einn hæng á móti 4 hrygnum. Þetta er harðgerður og vel sýnilegur fiskur.

Uppruni: S-Ameríka: vatnasvæði efra Paraguay og Guaporé fljóts.

Æxlun: Stráir eggjum á hefðbundinn tetru máta. Frekar auðveldur í ræktun og auðvelt að þekkja kynin sundur. Best að hafa þéttan gróður til að hrygna í og fjarlægja foreldrana eftir got. Hrognin klekjast út á 24-30 tímum og seiðin eru frísyndandi eftir nokkra daga.

Búrstærð: 60 l

Hitastig:  22-28°C

Sýrustig (pH): 6,0-7,5

Harka (gH): 18

Fóður: Þurrfóður, blóðormar og hvers kyns smáormar..

Verð: 380 kr.

Black Phantom1

Copyright www.jjphoto.dk

Black Phantom
blackphantom_tetra
botn