toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Bleeding-heart Tetra

Bleeding-heart Tetra
Hyphessobrycon erythrostigma

Stærð: 6,1 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er spengilegri en hrygnan og litmeiri.

Um fiskinn: Hjartatetran er falleg og með einkennandi rauðan blett yfir hjartastað. Lyndir almennt vel við aðra rólega fiska og plummar sig best í torfu með 5 eða fleiri fiskum. Oft er heppilegast að hafa einn hæng á móti 4 hrygnum. Þetta er harðgerður fiskur sem syndir gjarnan um allt búrið og er vel sýnilegur.

Uppruni: S-Ameríka: vatnasvæði efra Amazon-fljóts.

Æxlun: Stráir eggjum á hefðbundinn tetru máta. Ekki svo erfiður í ræktun. Best að hafa þéttan gróður til að hrygna í og fjarlægja foreldrana eftir got. Hrognin klekjast út á 24-36 tímum og seiðin eru frísyndandi eftir 3-4 daga.

Búrstærð: 80 l

Hitastig:  23-28°C

Sýrustig (pH): 5,6-7,2

Harka (gH): 12

Fóður: Þurrfóður, blóðormar.

Verð: 380 kr.

hyphessobrycon_erythrostigma

Copyright www.jjphoto.dk

bleeding heart1
Bleeding heart2
botn