toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Blue-headed Macaw

Blue-headed Macaw (Coulon’s Macaw)
Ara couloni

Lýsing: Almenn litur grænn; enni. hvirfill og hliðar höfuðs bláar; flugfjaðrir og aðalvængblöðkur bláar; vængbrún blágræn; ytri efri vængblöðkur bláar með grænni brún; undirhlið flugfjaðra og stéls olívíugular; stélfjaðrir bláar; goggur svartur; hvítleitur fremst á enni; bersvæði milli augna og goggs svartleitt; augu gul með rauðappelsínugulum ytri hring; fætur í holdlitum.

Óþroskaðir fuglar með dekkri augu.

Lengd: 41 cm.

Lífslíkur: 50 ár.

Um kynin: Lítill útlitsmunur. DNA-greiningar þörf.

Uppruni: Austur-Perú norður til efri hluta Huallaga dals, vestast í Brasilíu og norðast í Bólivíu.

Um fuglinn: Laglegur dvergari. Feimnir í fyrstu en fljótir að hænast að eigandanum. Baða sig sjaldan. Naga mikið og þurfa mikið af grænum greinum.

Hávaðasemi: Í meðallagi hávær.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES II. Algengir víðast hvar.

ara_couloni

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

botn