|
Mayan Cichlid (Mexican Mojarra/Orange Tiger) Cichlasoma urophthalmus
Stærð: 25 cm.
Kynin: Kvenfiskurinn er minni og hængurinn litsterkari. Hann er brúnappelsónugulur með áberandi svargrænum þverböndum. Uggarnir á hængnum eru oddmjórri. . Um fiskinn: Þessi siklíða er mjög aðlaðandi og stór. Hún blandast sæmilega í samfélagsbúrum með síkliðum af svipaðri stærð, en getur þó verið óútreikn- anleg þannig að hafa þarf auga með henni, einkum ef tveir eða fleiri hængar eru saman. Þetta er góður matfiskur og finnst jafnt í ferskvatni sem ísöltu vatni árósa. Þurfa góð vatnsgæði. Mælt með 25% vatnsskipti vikulega.
Æxlun: Þessir fiskar eru frábærir foreldrar. Þeir hrygna venjulega í litlum hellum eða holum og hrognin klekjast út á 3 dögum. Hrognafjöldi 200-300. Foreldrarnir vernda seiðin og reka í hjörð. Stundum hugsa báðir foreldrar um hjörðina, og stundum bara kvenfiskurinn.
Uppruni: Mið-Ameríka: Atlantshafsmegin - frá Mexíkó til Níkaragúa.
Búrstærð: 400 l
Hitastig: 20-30°C
Sýrustig (pH): 7-8
Harka (gH): 5-25
Fóður: Þurrfóður, blóðormar, skordýr, smáfiskar.
Verð: 4 cm: 1.290 kr.
|
|