|
|
Fire Crest Blotch Copadichromis “Fire Crest Blotch”
Stærð: 13-16 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er nánast svartur með hvíta blesu og hvítgula bak- og kviðugga. Hann er með tvo áberandi dökka bletti. Annan um miðjan búkinn og hinn á spyrðlinum. Hrygnan er silfurbrúnleit með blettina tvo (mið mynd). Hængurinn missir svarta litinn fljótt ef hann er hafður með grimmari fiskum.
Um fiskinn: Þessi fallegi fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Heldur sér á 20-50 m dýpi í Malavívatni. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst nálægt Gnome Rock hjá Makanjilla á austurströnd vatnsins (neðsta mynd). Skyldur C. “Fire Crest Wimpel”, C. “Fire Crest Yellow”.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.
Búrstærð: 600 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8
Harka (gH): 22
Fóður: Dafnía, fullvaxin artemía, þurrfóður.
|
|