|
|
Fire Crest Wimpel Copadichromis “Fire Crest Wimpel”
Stærð: 12-14 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er nánast svartur með hvíta blesu, hvítan bakugga og oft hvítar sporðblöðkur sem lengjast á hrygningartíma. Eru oft með rauðleita rák eftir öllum bakugganum. Hrygnan er silfurbrúnleit (neðst til vinstri). Hængar missa fljótt svarta litinn ef þeir eru hafðir með grimmari fiskum.
Um fiskinn: Þessi fallegi fiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Heldur sér á 20-50 m dýpi í Malavívatni. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst nálægt Gnome Rock hjá Makanjilla á austurströnd vatnsins (neðst til hægri). Skyldur C. “Fire Crest Blotch, C. “Fire Crest Yellow”.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.
Búrstærð: 600 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8
Harka (gH): 22
Fóður: Dafnía, fullvaxin artemía, þurrfóður.
|
|