toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Copadichromis “Fire Crest Yellow”

Fire Crest Yellow

Fire Crest Yellow
Copadichromis “Fire Crest Yellow”

Stærð: 12-13 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er svarblár eða svarbrúnn tur með hvíta blesu, hvítgula eða hvítbláa bakugga og sporðblöðkur sem lengjast á hrygningartíma. Eru oft með bláleita brún á bakugganum. Hrygnan er silfurgrá eða gulgrá. Hængar missa fljótt svarta litinn ef þeir eru hafðir með grimmari fiskum.

Um fiskinn: Þessi glæsilegi fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Heldur sér á 20-50 m dýpi í Malavívatni. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst við Nkanda á austurströnd vatnsins. Skyldur C. “Fire Crest Blotch”, C. “Fire Crest Wimpel”.

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.

Búrstærð: 600 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8

Harka (gH): 22

Fóður: Dafnía, fullvaxin artemía, þurrfóður.

Fire Crest Yellow1
Fire Crest Yellow2
botn