|
|
Kawanga Copadichromis “Kawanga”
Stærð: 12-13 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er svarblár með gulum lit á búknum. Hann er með þrjá dökka búkbletti. Hrygnan er silfurgrá með blettina þrjá (neðsta mynd). Hængurinn missir svarta litinn fljótt ef hann er hafður með grimmari fiskum.
Um fiskinn: Þessi myndarlegi fiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Heldur sér á 5-30 m dýpi í Malavívatni. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst við norðvesturströnd vatnsins milli Nkahta Bay og Chilumba. Skyldur C. azureus, C. “Verduyni Deep Blue”, C. “Verduyni Northern”.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.
Búrstærð: 300 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8
Harka (gH): 22
Fóður: Dafnía, fullvaxin artemía, þurrfóður.
|
|