toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Copadichromis “Mloto Midnight”

Mloto Midnigh

Mloto Midnight
Copadichromis “Mloto Midnight”

Stærð: 12-15 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er svartur með glæsilega ugga og hvíta brún á bakugganum. Hrygnan er dökkgrá með þrjá dökka bletti (mið mynd). Hængurinn missir svarta litinn fljótt ef hann er hafður með grimmari fiskum.

Um fiskinn: Þessi glæsilegi fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Heldur sér á 3-15 m dýpi í Malavívatni. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst víða meðfram austurströnd vatnsins, einkum nálgt Cobué. Skyldur C. ”Mloto White Top” og C. ”Mloto White Top Lupingu”.

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8

Harka (gH): 22

Fóður: Dafnía, fullvaxin artemía, þurrfóður.

Mloto Midnigh1
Mloto Midnigh2
botn