toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Copadichromis “White Top”

Mloto White Top
Copadichromis “White Top”

Stærð: 12-13 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er svartur með að mestu leyti hvítan bakugga og oft hvíta blesu á höfði. Hrygnan er silfurgrá með þrjá dökka bletti (mið mynd). Hængurinn missir svarta litinn fljótt ef hann er hafður með grimmari fiskum.

Um fiskinn: Þessi myndarlegi fiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Heldur sér á 3-15 m dýpi í Malavívatni. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum. Finnst nálægt Likoma og Chisumulu-eyju á austurströnd vatnsins (neðsta mynd til hægri). Skyldur C. ”Mloto Midnight” og C. ”Mloto White Top Lupingu”.

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8

Harka (gH): 22

Fóður: Dafnía, fullvaxin artemía, þurrfóður.

Mloto White Top
Mloto White Top1
Mloto White Top2 Mloto White Top3
botn