|
Azure Copadichromis azureus
Stærð: 12-16 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er himinblár með undirliggjandi þriggjabletta mynstri en hrygnan silfurgrá og einnig með blettina þrjá (neðsta mynd). Nokkur litamunur er á hængum eftir staðsetningu í vatninu og ýmis undirafbrigði til (Maleri).
Um fiskinn: Þessi gullfallegi fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Heldur sér á 10-25 m dýpi í Malavívatni. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst oft við Maleri og Mbenji-eyjar við vesturströnd vatnsins. Skyldur C. “Kawanga”, C. “Verduyni Deep Blue”, C. “Verduyni Northern”.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.
Búrstærð: 300 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8
Harka (gH): 22
Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, þurrfóður.
|
|