toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Copadichromis borleyi “Namalenji”

Borley “Namalenji”
Copadichromis borleyi “Namalenji”

Stærð: 15-17 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er með gulrauðum búk, bláum haus og mjög áberandi langan kviðugga. Svo glittar í þriggjableta mynstri á búknum. Hrygnan er gráleit og vottar fyrir þrem búkblettum. Nokkur litamunur er á hængum eftir staðsetningu í vatninu og ýmis undirafbrigði til (Cobué, Kandango, Gold Fin, Namalenji). Nefndur í höfuðið á H.J.H. Borley.

Um fiskinn: Þessi ægifagri fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Heldur sér á 10-25 m dýpi í Malavívatni. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst við Namalenji-eyju út af vesturströnd vatnsins (mynd neðst til hægri).

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.

Búrstærð: 600 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8

Harka (gH): 22

Fóður: Dafnía, fullvaxin artemía, þurrfóður.

Borley “Namalenji”
Borley “Namalenji”1
Borley “Namalenji”2 Borley “Namalenji”3
botn