|
|
Trimaculatus Copadichromis cf. trimaculatus
Stærð: 16-20 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er með rauðbrúnan búk, bláan haus og áberandi þríblett. Einnig með áberandi guleita ugga. Hrygnan er silfurgrá og vottar fyrir þrem dökkum búkblettum (neðri mynd).
Um fiskinn: Þessi stóri fiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Heldur sér á 10-25 m dýpi í Malavívatni. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst í Nkhata Bay og við Likoma-eyju í suðurhluta vatnsins.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.
Búrstærð: 600 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8
Harka (gH): 22
Fóður: Dafnía, fullvaxin artemía, þurrfóður.
|
|