|
|
Chrysonotus Copadichromis chrysonotus
Stærð: 15-18 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er með svarbláum kviði og hvítbláleittu höfði og baki ásamt áberandi þríbletta- mynstri. Hrygnan er silfurgrá og vottar fyrir þrem dökkum búkblettum (mið mynd).
Um fiskinn: Þessi stórgerði fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Heldur sér á 1-3 m dýpi í Malavívatni. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst víða í vatninu td. við Masimbwe-eyju (neðsta mynd).
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.
Búrstærð: 600 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8
Harka (gH): 22
Fóður: Dafnía, fullvaxin artemía, þurrfóður.
|
|