toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Copadichromis cyaneus

Cyaneus

Cyaneus (Mumbo Mloto)
Copadichromis cyaneus

Stærð: 15-18 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er skærblár með hvítri blesu og stundum hvítleitum bakugga og dökkum bletti á spyrðlinum. Hrygnan er silfurgrá.

Um fiskinn: Þessi stórvaxni fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Heldur sér á 1-3 m dýpi í Malavívatni. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst einkum við Cape Maclear og Monkey Bay í suðurhluta vatnsins td. Mumbo Island (neðsta mynd). Líkist C. jacksoni.

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.

Búrstærð: 600 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8

Harka (gH): 22

Fóður: Dafnía, fullvaxin artemía, þurrfóður.

Cyaneus1
Cyaneus2
botn