|
|
Jacksoni Copadichromis jacksoni
Stærð: 12-13 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er dökkblár með hvítri blesu og hvítbrýndum bakugga og þrem áberandi dökkum búkblettum. Hrygnan er silfurgrágræn (mið mynd).
Um fiskinn: Þessi torveiddi fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Heldur sér á 3-10 m dýpi í Malavívatni. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst út af Makanjilla í austurhluta vatnsins (neðsta mynd). Líkist C. cyaneus.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.
Búrstærð: 1.000 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8
Harka (gH): 22
Fóður: Dafnía, fullvaxin artemía, þurrfóður.
|
|