toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Copadichromis mbenji

Mbenji

Mbenji
Copadichromis mbenji

Stærð: 12-14 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er blágulur með hvítbrýndum, bláum bakugga, gulum hálsi og kviði og þrem dökkum búkblettum. Hrygnan er silfurbrún með þrem dökkum búkblettum (mið mynd). Líkist C. borleyi en er með gulan háls og rúnnaðra höfuð.

Um fiskinn: Þessi rólyndi fiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Heldur sér á 3-10 m dýpi í Malavívatni. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst út af Makanjilla í austurhluta vatnsins (neðsta mynd). Líkist C. cyaneus.

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8

Harka (gH): 22

Fóður: Dafnía, fullvaxin artemía, þurrfóður.

Mbenji1
Mbenji2 Mbenji3
botn