|
|
Quadrimaculatus Copadichromis quadrimaculatus
Stærð: 16-20 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er ljósblár, oft með hvítri blesu og hvítbrýndum bakugga. Höfuðið er aðeins íhvolft og vottar fyrir fjórum dökkum búkblettum. Hrygnan er silfurgrágræn með sömu búkbletti (mið mynd).
Um fiskinn: Þessi stórgerði fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst út af Makanjilla í austurhluta vatnsins.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.
Búrstærð: 600 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8
Harka (gH): 22
Fóður: Dafnía, fullvaxin artemía, þurrfóður.
|
|