|
Verduyne Deep Blue “Lundo” Copadichromis verduyne “Deep Blue” (Lundo)
Stærð: 12-13 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er djúpblár jafnvel svartur með gulum yrjum á afturbúk og sporði og vottar fyrir hvítri blesu. Nokkur litamunur er á hængum eftir staðsetningu í vatninu og ýmis undirafbrigði til (Kirondo, Mbamba Bay, Puulu). Hrygnan er silfurgrá (mið mynd).
Um fiskinn: Þessi fallegi fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að líkja eftir náttúrulegum aðstæðum hans. Finnst milli Kirondo og Mbamba Bay á norðaustur- strönd Malavívatns. Skyldur C. azureus, C. “Kawanga”, C. verduyni, C. verduyni “Northern”.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.
Búrstærð: 300 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8
Harka (gH): 22
Fóður: Dafnía, fullvaxin artemía, þurrfóður.
|
|