toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Copadichromis verduyne "Deep Blue” (Kirondo)

Verduyne Deep Blue “Kirondo”

Verduyne Deep Blue “Kirondo”
Copadichromis verduyne “Deep Blue” (Kirondo)

Stærð: 12-13 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er djúpblár jafnvel svartur með gulum yrjum á afturbúk og sporði og vottar fyrir hvítri blesu. Nokkur litamunur er á hængum eftir staðsetningu í vatninu og ýmis undirafbrigði til (Lundo, Mbamba Bay, Puulu). Hrygnan er silfurgrá (neðsta mynd).

Um fiskinn: Þessi fallegi fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að líkja eftir náttúrulegum aðstæðum hans. Finnst milli Kirondo og Mbamba Bay á norðaustur- strönd Malavívatns. Skyldur C. azureus, C. “Kawanga”, C. verduyni, C. verduyni “Northern”.

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8

Harka (gH): 22

Fóður: Dafnía, fullvaxin artemía, þurrfóður.

Verduyne Deep Blue “Kirondo”1
Verduyne Deep Blue “Kirondo”2
botn